Lög fyrir Ladies’ Circle Ísland.1. Nafn. Nafn landssambandsins er Ladies’ Circle Ísland (skammstafað LCÍ). 2. Einkunnarorð. Einkunnarorð landssambandsins eru: Vinátta og hjálpsemi. 3. Markmið. Markmið landssambandsins eru: 1) Að auka áhugasvið félaganna og þekkingu þeirra á lifnaðarháttum annarra og efla sjálfstæði þeirra og umburðarlyndi. 2) Að efla alþjóðlegan skilning og vináttu. 3) Að trú og stjórnmál setji ekki mark sitt á klúbbana. Þessum markmiðum skal m.a. náð með fundum, fyrirlestrum, umræðum og þátttöku í alþjóðlegum fundum. 4. Tengsl við LC International. Landssambandið hefur fulla aðild að Ladies’ Circle International (skammstafað LCInt.) 5. Uppbygging LCÍ. 1) Landssambandið samanstendur af félögum í LC klúbbum á Íslandi. 2) Framkvæmdavald landssambandsins er í höndum stjórnar sem samanstendur af:
3) Tilnefning varalandsforseta, gjaldkera og ritara tilkynnist fyrir 15. febrúar til landsstjórnar sem síðan sendir tilnefninguna til stjórna allra klúbba fyrir 1. mars. Séu tvær í kjöri um sama embætti skal fara fram atkvæðagreiðsla í klúbbunum. Atkvæðaseðla klúbbanna á að senda landsforseta fyrir 15. apríl og leggur hann þá fram á landsfundi. Kjörgengi til varalandsforseta hafa þær sem verið hafa í stjórnum klúbba eða í landsstjórn og hafa verið í LC í minnst þrjú ár. Ekki er hægt að vera landsforseti oftar en einu sinni. Vígsla landsforseta fer fram á landsfundi. 4) Gjaldkera og ritara er heimilt að kjósa til tveggja ára í senn. Fráfarandi landsforseti hættir í landsstjórn þegar eftir fulltrúaráðsfund að hausti, sem venjulega er í október. Falli fundurinn niður af einhverjum ástæðum, hættir fráfarandi landsforseti 1. nóvember, en situr þó fulltrúaráðsfundinn sé hann haldinn fyrir áramót. 5) LC klúbb er aðeins hægt að stofna í tengslum við annan LC klúbb eða RT.
6) Skyldur landsstjórnar:
7) Skyldur landsforseta: Landsforseti annast daglegan rekstur landstjórnar, þ.m.t.
8) Skyldur varalandsforseta:
9) Skyldur gjaldkera:
10) Skyldur ritara:
6. Lagabreytingar. 1) Breytingar á lögum fara fram á eftirfarandi hátt:
7. Landsfundur LCÍ. 1) LC Ísland heldur landsfund fyrir 31. maí ár hvert. Skal boða til hans skriflega fyrir 1. mars, þar sem tilgreindur er tími, staður og dagskrá fundarins. Landsfundur er löglegur ef 2/3 fulltrúa eru mættir og til hans var löglega boðað. Tveimur vikum fyrir landsfund skulu endurskoðaðir reikningar landsstjórnar sendast klúbbunum ásamt fjárhagsáætlun næsta árs. 2) Dagskrá landsfundar: a) Lögmæti fundarins kannað. b) Kosning fundarstjóra og fundarritara, sem skulu ekki vera landsstjórnarfulltrúar. c) Ársskýrsla landsstjórnar. d) Ársskýrsla klúbbformanna e) Ársreikningar LCÍ lagðir fram til samþykktar. f) Lagabreytingar g) Kosning nýrrar landsstjórnar. h) Kosning endurskoðanda. i) Vígsla landsforseta j) Starfs- og fjárhagsáætlun nýrrar landsstjórnar lögð fram til samþykktar. k) Kynning nýrra klúbbformanna. l) Elínarsjóður m) Önnur mál (Klúbbar skili gögnum og fl. 3) Hver klúbbur skal senda formann eða fulltrúa hans til landsfundar. Sé fulltrúi frá einhverjum klúbbi ekki á landsfundi skal klúbburinn greiða kr. 10.000 til landsstjórnar. 4) Atkvæðisrétt á landsfundi hafa landsforseti og klúbbformenn eða fulltrúar þeirra. 5) Samþykki 3/4 fulltrúa þarf til lagabreytinga, einfaldur meirihluti fundarins ræður öðrum málum. Ef atkvæði falla á jöfnu ræður atkvæði landsforseta úrslitum. 6) Ef landsfundur er ekki löglegur, skal boða nýjan landsfund eins fljótt og auðið er skriflega með fjögurra vikna fyrirvara. 7) Einnig er hægt að boða til auklandsfundar ef landsstjórn eða 1/4 klúbba í landinu fara fram á það. 8. Fulltrúaráðsfundur 1) Fulltrúaráðsfundir skulu haldnir tvisvar á ári, þ.e. að vori fyrir landsfund og að hausti í október eða nóvember. Boða skal til fulltrúaráðsfundar skriflega með mánaðarfyrirvara og skal fundarboðið tilgreina fundartíma, fundarstað og efni fundarins. 2) Hver klúbbur skal senda tvo fulltrúa á hvern fund, formann, varaformann eða staðgengla þeirra. Hver klúbbur sem ekki hefur fulltrúa á fundinum skal greiða kr. 10.000 til landsstjórnar fyrir hvern fulltrúa sem að ekki mætir. 3) Atkvæðarétt á fulltrúaráðsfundum hefur landsforseti, formenn og varaformenn eða staðgenglar þeirra. 4) Fulltrúaráðsfundir eru opnir öllum LC-konum. Stjórnir klúbba skulu hvetja konur til að mæta á fundina. Þáttöku skal tilkynna með góðum fyrirvara. 9. Tekjur og gjöld 1) Árgjald næsta árs skal ákveðið á landsfundi. Klúbbarnir greiði árgjald til landstjórnar í tvennu lagi: Fyrri helming gjaldsins í síðasta lagi þann 15. júní og skal þá miðað við fjölda félaga þann 1. júní og seinni helming gjaldsins í síðasta lagi þann 15. janúar og skal þá miðað við fjölda félaga þann 1. janúar. 2) Starfsár LCÍ er frá landsfundi til landsfundar og reikningsárið er frá 1. apríl til 31. mars á næsta ári. 3) Vígist félagi inn í klúbb á tímabilinu 1. júní til 31. desember greiðst fullt gjald, en vígist félagi inn á tímabilinu 1. janúar til 31. maí greiðist hálft gjald. 4) Klúbbar sem vígjast fyrir 1. janúar borga fullt gjald til landsstjórnar, annars hálft gjald. 5) Gjöld klúbbanna notast til daglegs reksturs landsstjórnar, nauðsynlegs ferðakostnaðar fulltrúa, ásamt árlegri greiðslu til LCInt. 10. Slit landssambandsins LCÍ. 1) Tillaga um slit landssambandsins getur komið frá landsstjórn eða klúbbi. 2) Ákvörðun um slit landssambands er aðeins gild ef vilji 3/4 hluta fulltrúa á landsfundi er fyrir tillögunni. 3) Landsstjórn tilkynnir LCInt. um slit landssambandsins. 4) Eignir landssambandsins skulu renna til líknarmála. 5) Ekki er hægt að slíta landsambandsinu nema að gera upp skuldir þess. KLÚBBARNIR 11. Félagsaðild. 1) Aðild að klúbbnum geta þær konur öðlast sem óska eftir að ganga í klúbbinn og eru samþykktar af einföldum meirihluta á félagsfundi. 2) Félagi sem stingur upp á nýjum félaga í klúbbinn skal bera það skriflega undir stjórnina þar sem kemur fram nafn, aldur, starf og búseta. Stjórnin skal síðan tilkynna félögum um tillöguna. Félagarnir hafa rétt til að koma með rökstuddar athugasemdir innan 10 daga. 3) Nýr félagi skal taka þátt í að minnst 2 fundum og allt að 5 fundum fyrir formlega inngöngu. 4) Mætingarskylda er á fundi og skal tilkynna forföll. Hver einstaklingur er skyldugur til að taka þátt í starfi klúbbsins og greiða föst gjöld sem ákveðin eru á aðalfundi hvers klúbbs. 5) Félagi getur fengið leyfi frá klúbbstarfinu af gildum ástæðum með samþykki stjórnar. Viðkomandi þarf í öllum tilfellum að borga sitt fasta gjald til landsstjórnar. 12. Félagsaðild lýkur. 1) Við lok þess starfsárs þegar LC félagi verður 45 ára. 2) Þegar félagi hefur sagt sig skriflega úr klúbbnum til stjórnar. 3) Ef félagi mætir ekki á 6 fundi á einu starfsári án skýringa. 4) Ef félagi skuldar 1 ársgjald eða meira. 5) Stjórn klúbbs getur vísað LC félaga úr klúbbnum er sýnt þyki að viðkomandi hafi brotið lög og einkunnarorð LCÍ. 13. Stjórnarkjör. 1) Í hverjum klúbbi er kosin stjórn sem skipuð er alls 5 konum þ.e. formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda sem oft er fráfarandi formaður. Auk þess er einn endurskoðandi. Þeir sem kosnir eru í stjórn verða að hafa starfað innan LC í eitt ár af mögulegt er. Formaður skal aðeins kosinn til eins árs í senn og enginn getur orðið ormaður oftar en tvisvar. Ritari skal einnig kosinn til eins árs, en gjaldkeri til tveggja ára í senn. Enginn getur neitað að taka þátt í stjórn. Á aðalfundi skal velja uppstillinganefnd sem í situr varaformaður og tveir almennir félagar. Þessi nefnd skal gera tillögu að nýrri stjórn til næsta árs. 2) Ákvarðanir stjórnar eru aðeins gildar þegar meirihluti er fyrir þeim. 14. Aðalfundur. 1) Aðalfund klúbbs skal halda fyrir landsfund LCÍ. Til aðalfundarins skal boða skriflega með a.m.k. 14 daga fyrirvara þar sem dagskrá og tillaga að nýrri stjórn er lögð fram. Dagskrá aðalfundar klúbbs skal innihalda a.m.k. neðangreinda dagskrárliði: 1. Lögmæti fundarins kannað 2. Skýrsla formanns 3. Ársreikningar klúbbs lagðir fram til samþykktar 4. Kosning nýrrar stjórnar 5. Kosning endurskoðanda 6. Stjórnarskipti 7. Önnur mál 15. Klúbbslit. 1) Ákvörðun um klúbbsslit skal tekin á aðalfundi þar sem minnst 3/4 hlutar félaga eru til staðar og þarf 4/5 hluta fyrir samþykki. 2) Komi til klúbbslita skulu eignir klúbbsins renna til líknarmála. 3) Ekki er hægt að slíta klúbb nema að gera upp skuldir hans. 16. Merki. 1) Merki LCÍ er hringlaga skjöldur með þvermáli 1000 og er hreinskorið með hring að þykkt 13.Hjólið sjálft er að utanmáli 948 og innanmáli 710 og afmarkast af hringjum og þykkt 10. Á miðja hlið hjóls er letrað LADIES CIRCLE lóðrétt yfir miðju merkis og ÍSLAND lóðrétt undir miðju, með letri að hæð 53. Í nafi hjóls sem er að utanmáli 244 er mynd af gjósandi eldfjalli. Naf er í miðju merkis og afmarkast af hring og þykkt 10. Naf og hjól tengjast með sex “skrautrenndum” geislum. Tveir geislanna eru lárétt útfrá miðju merkis. Sex hjörtu að mestu hæð og breidd 205 eru miðjuð á milli geisla. Ysta brún þeirra er 338 frá miðju merkis. Merkið er í tveimur litum auk grunnlitar. Hjól og áletrun er gyllt, en hjörtu eru rauð. Grunnlitur merkis er hvítur. Öll notkun merkis LCÍ er óheimil, nema með leyfi landsstjórnar. Ekki má breyta eða afbaka merkið á nokkurn hátt. Í merki klúbba skal merki LCÍ koma fram og stærð þess skal ekki vera minni en fjórðungur stærsta þvermáls klúbbmerkis. Ný merki klúbba skal senda landstjórn til samþykktar. 2) Fánar LCÍ eru:
Í fánum landsstjórnar komi fram merki LCÍ. Merkið komi í miðju fána. Í gerð borð- og veggfána landsstjórnar skal koma þríhyrnt flagg í fánalitum sem bylgjast lóðrétt niður að baki merkis. Breidd flaggs að ofanverðu er jöfn þvermáli merkis. Borðfáninn skal vera tvöfaldur og skal stofndagur landsstjórnar koma fram á bakhlið hans. Útifáni skal vera í hlutföllunum 1,5 á móti 2,4 og merki LCÍ sé 0,5. 3) Klúbbfánar. Í gerð klúbbfána komi fram merki LCÍ, nafn Ladies Circle eða skammstöfunin “LC” og klúbbnúmer, ásamt heiti staðarins þar sem klúbburinn er staðsettur. Klúbbfánar skulu hljóta samþykki landsstjórnar/fulltrúaráðs |



