Ferðasjóður LCÍReglur sjóðsins: a. Stofnaður er ferðasjóður LCÍ þann 13. október 2007. Stofnfé sjóðsins er ágóði LCÍ frá ráðstefnu samtakanna, AGM 2005 sem haldin var í Reykjavík. Stofnfé er kr. 887.000. b. Viðhald sjóðsins er fjármagnað með árlegu happdrætti LCÍ á landsfundi. c. Árlega ákveður landsfundur eftir tillögu frá landsstjórn upphæð sem ferðasjóður LCÍ úthlutar til virkra félagskvenna. d. Ferðasjóðurinn er ætlaður til styrktar ferðalaga vegna þátttöku í aðalfundum Ladies Circle á alþjóða vettvangi, AGM, sem haldið er árlega í lok ágúst eða byrjun september. e. Umsóknarfrestur í sjóðinn er 1. apríl ár hvert. f. Til að fá úthlutaðan styrk þurfa meðlimir að hafa starfað í þrjú ár frá vígslu í klúbb. g. Eftir styrkveitingu er ekki mögulegt að fá styrk að nýju fyrr en að þremur árum loknum. h. Umsóknina skal senda til landsstjórnar með upplýsingum um fyrirhugaða ferð. i. Sjóðurinn veitir að hámarki samtals kr. 100.000 styrk árlega. j. Fjöldi styrkþega skal að hámarki vera fjórir. k. Ef ráðstöfunarupphæð er ekki úthlutað skal upphæðin færð til næsta starfsárs. l. Styrkþegar skulu skrifa ferðasögu um ferðalag sitt sem birt er í Rokknum og/eða á heimasíðu félagsins, eigi síðar en 2 mánuðum eftir heimkomu. m. Styrkumsóknarblað er á heimasíðu félagsins. www.ladies-circle.is Umsóknarform |



