AGM 2009 Lithuania
Vígsla LC 11 í Vestmannaeyjum. Í yfir 20m/s lögðu galvaskar Ladies circle konur af stað til Vestmanneyja. Þar tók á móti okkur eyjakonurnar Ingibjörg og Gíslína í mini-rútu með LC skilti. Eftir að hafa komið okkur fyrir og fengið hressingu var farið í glæsilegan nýkláraðan fundarstað Ladies Circle og Round Table í Vestmannaeyjum í húsnæði Ísfélagsins. Á fundinn komu úr Reykjavík fulltrúar landsstjórnar, fulltrúar móðurklúbbs og tveir gestir, Helga Guðný Landsforseti LC-3, Ester ritari landsstjórnar LC-3, Guðrún vefstjóri landstjórnar LC-4, Ágústa formaður LC-4, Sonja ný kona í LC-3 og Linda Rós( væntanleg LC kona). Úr Vestmanneyjum mættu góðar konur sem ætla að nú að gerast formlega Ladies Circle konur en þær eru Ingibjörg formaður, Gíslína varaformaður, Björg ritari, Salome meðstjórnandi, Dagrún gjaldkeri, Sonja, Ólöf og Sigga. Fundurinn hófst á því að Helga Guðný kveikti á kerti vináttunnar og setti fundinn, farinn var kynningarhringur, síðan voru lesnar nokkrar greinar upp úr félagatalinu og farið yfir reglur og skyldur og rætt um almennar fundarhefðir vítt og breitt, sköpuðust fínar umræður og voru konur almennt áhugasamar og duglegar að spyrja. Síðan fengum við smá hressingu og spjallað meira og síðan hófst vígsluathöfn Ladies Circle 11. Helga Guðný bauð hverja og eina vestmanneyjakonu velkomna inn í Ladies Circle hreyfinguna með viðurkenningarskjali og Ágústa festi í þær nælu Ladies Circle. Þær fengu allar hálsmen að gjöf frá landsstjórninni og klúbburinn formannsnælu, sem Ágústa festi í Ingibjörgu formann. Guðrún afhenti nýja klúbbnum glæsilega fundartösku að gjöf frá móðurklúbbnum og einnig fengu þær kerti að gjöf frá LC-3. Að lokinni athöfninni var skálað í kampavíni og farið í leik. Eftir þetta var gerð smá hlé á dagskrá svo að konur gætu tekið sig til fyrir kvöldverðinn. Kvöldskemmtunin var haldinn í fundarhúsnæðinu mættu þangað Ladie circle konur með mökum sínum og einnig Round Table 11 menn úr vestmannaeyjum ásamt konum sínum. Borðað var gómsætan mat, síðan var farið í leiki, skrafað, sungið og í lokin farið á ball fram á rauða nótt. Lítill svefn náðist áður en skriðið var aftur uppí Herjólf eftir góða en stutta veru í Vestmanneyjum. Takk fyrir okkur frábæru vestmanneyjakonur, sérstaklega Gíslína fyrir gistinguna og hlökkum til að sjá ykkur fljótlega aftur og enn og aftur velkomnar í Ladies Circle.
|






