Póstlisti
Skráđu netfangiđ ţitt og fáđu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá
September - 2010
S M Ţ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
<
>

Styrkataraðilar                                        

 
 
 
 

Uppskriftir

 

Karrísúpa

 

2 tsk ólífuolía

4 tsk hvítlauksrif

3 cm ferskur engifer

2 stk rauð chilialdin

1 msk milt karrímauk frá Patakas

1 dl. Vatn

2 stk grænmetisteningar

1 dós kókosmjólk

1 dós tómatar, um 400 gr

2 stk stórar sætar kartöflur

200 gr sykurertur (ekki nauðsynlegt samt )

1 stk brokkolíhöfuð (Ég nota samt alltaf bara frosinn blandaðan poka af brokkolí, blómkáli og gulrótum)

Smá sjávarsalt og pipar

Smá ferskur kóríander

½ dl kókosflögur (ég nota samt alltaf fullt meir en það)

Pressið hvítlaukinn og afhýðið engifer og skerið í pínulitla bita. Skerið chilialdin í tvennt, fræhreinsið og skerið í litla bita. Skerið kartöflur og brokkolí í hæfilega stóra bita. Hitið olíu í potti og mýkið hvítlauk, engifer, chili og karrýmauk þar. Látið malla í 2-3 mínútur.

Leysið grænmetisteningana upp í vatninu og bætið þeim útí pottinn ásamt kókosmjólk, tómötum og kartöflum. Látið þetta sjóða í um 5 mínútur. Bætið sykurertum og brokkolí útí og sjóðið áfram í um 7-8 mín. Bragðið til mað sjávarsalti og pipar og klippið síðan smá ferskt kóríander yfir. Þurristið kókosflögurnar og stráið yfir súpuna.

Tilvalið að bæta smá tófúbitum, kjúlla, rófum eða hverju sem er og setja útí með kókosmjólkinni. Einnig passar sérlega vel að rista kókosflögur og strá yfir súpuna áður en hún er borin fram.

sunnudagur 5 september 09 2010

Um Ladies Circle

Ladies Circle, eða LC, er alþjóðlegur félagsskapur ungra kvenna á aldrinum 18-45 ára, sem vilja stuðla að því að konur kynnist hver annarri, víkki út sjóndeildarhring sinn og efli alþjóðlega skilning og vináttu...

Lesa nánar


Viltu vita meira?

 Ef þig langar til að vita meira eða langar til að gerast félagi í LC Ísland þá sendu okkur póst. 

vefstjori@ladies-circle.is - landsforseti@ladies-circle.is

 

Staðsetning klúbba Ladies Circle Ísland